| Sf. Gutt

Merkur dagur fyrir tvo úr okkar röðum!

Það var sögulegur dagur í íslenskri íþróttasögu í dag þegar íslenska landsliðið í handknattleik komst í úrslitaleik handknattleikskeppni Ólympíuleikanna. Hér er smá hliðarsaga sem segir af tveimur félögum okkar í Liverpool klúbbnum sem segja má að hafi brotið blað í dag. Að minnsta kosti finnst mér, sem hef fylgst með þeim frá fyrsta degi, það.

Þeir Guðmundur Magnússon og Arngrímur Baldursson eru af mörgum þekktir fyrir mikil og góð störf í þágu Liverpool klúbbsins. Guðmundur hefur unnið mikið við Liverpool.is og er núverandi vefstjóri síðunnar. Arngrímur hefur verið formaður Liverpool klúbbsins og hefur skrifað mikið á Liverpool.is og í Rauða herinn. En eins og það sé ekki nóg þá þá hafa þeir í frístundum byggt upp vefsíðuna LFChistory.net sem þeir reka og eiga. Þeir tveir hafa nú náð samkomulagi við Liverpool F.C. um samstarf. LFChistory.net birtist fyrst á netinu árið 2003 og þar er að finna alla leiki Liverpool frá upphafi, liðsuppstillingu allra leikja, alla markaskorara og svipmyndir af öllum leikmönnum sem hafa leikið fyrir hönd félagsins.

Liverpool Football Club hafði samband við þá félaga í febrúar síðastliðnum. Arngrímur fór til viðræðna við þá í höfuðstöðvum liverpoolfc.tv í Liverpool borg þar sem umsjónarmenn vefsíðu Liverpool F.C. gáfu frekar til kynna hvað þeir hefðu í huga. Eftir langar og strangar samningaviðræður næstu tvo mánuði á milli Reykjavíkur og Liverpool náðust samningar þeirra á milli.

Fyrstu merki um þetta samstarf birtust á fréttasíðu liverpoolfc.tv í morgun þar sem tilkynnt er að LFChistory.net muni á næstu vikum birta greinar sem fjalla um fyrstu ár Liverpool FC sem er afurð mikillar rannsóknarvinnu á dagblöðum þess tíma og á merkilegum skjölum sem hafa nýverið komið í leitirnar. Fyrsta greinin bregður nýju ljósi á stofnun félagsins og er hægt að lesa hér.

Auk þessara greina um sögu Liverpool mun fjöldi einkaviðtala LFChistory.net við goðsagnir Liverpool birtast á síðunni í haust. Enginn annar en Ian Callaghan, langleikjahæsti leikmaður í sögu Liverpool, féllst á að vera tengiliður LFChistory.net við gömlu stjörnurnar sem hefur þegar gefið af sér nokkur viðtöl.

Við munum flytja ykkur frekari fréttir af samvinnu Liverpoolfc.tv og LFChistory.net þegar má leiða í ljós hversu víðtækt þetta samstarf í raun er og verður. Það er líka ekki nokkur vafi á að þessi samvinna Liverpoolfc.tv og LFChistory mun koma starfi Liverpool klúbbsins á Íslandi til góða því þeir félagar eru ekki hættir að gera honum gott! Líklega munu sjást þess mest merki í Rauða hernum og á Liverpool.is.

Sem fyrr segir hef ég fylgst með vinnu þeirra félaga frá fyrsta degi og þó ég eigi, bara nokkrar greinar, vonandi góð ráð og hvatningu, í þeirri gríðarlegu vinnu sem liggur að baki síðunnar góðu þá er ég stoltur fyrir þeirra hönd. En smá hugmynd til þeirra félaga minna sem fæddist í því rosalega þjóðarstolti sem flæðir um allt land þennan góða síðsumarsdag. Hvernig væri að setja einhvers staðar "MADE IN ICELAND" á forsíðu LFChistory.net? Bara hugmynd strákar:-)

Til hamingju piltar mínir!

Sigfús Guttormsson

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan