| Sf. Gutt

Craig Lindfield lánaður

Sóknarmaðurinn Craig Lindfield hefur verið lánaður til Bournemouth. Hann verður þar til áramóta. Hann er tíundi leikmaður Liverpool til að vera sendur í lán fyrir þessa leiktíð. Craig var lánaður tvívegis á síðustu leiktíð. Hann var fyrst hjá Notts County og svo hjá Chester City. Hann skoraði eitt mark fyrir Notts County.

Kevin Bond, framkvæmdastjóri Bournemouth, er mjög ánægður með að hafa fegnið Craig til liðs við sig. "Hann hefur farið í lán áður og slík reynsla hefur oft komið leikmönnum vel. Craig er alinn upp hjá Liverpool og er í miklu áliti þar."

Bournemouth leikur í neðstu deild af atvinnumannadeildunum fjórum. Staða liðsins er ekki gæfuleg við upphaf móts en liðið var með 17 stig í mínus þegar hún hófst. Reyndar er liðið nú með 15 stig í mínus eftir að hafa fengið tvö stig í fyrstu leikjunum. Refsingin er tilkomin, ef rétt er vitað, vegna fjármálaóreiðu. Það má því ljóst vera að það verður erfitt fyrir liðið að forðast fall úr deildinni. Reyndar gæti það bjargað liðinu að Luton Town þurfti að byrja með 29 stig í mínus. Eitt lið fellur úr neðstu deild.

Craig Lindfield er talinn mjög efnilegur sóknarmaður og hann hefur skorað mikið fyrir unglingalið Liverpool. Hann varð Unglingabikarmeistari með Liverpool 2006 og 2007 og skoraði mikið bæði árin. Á miðfylgjandi mynd fagnar hann titlinum árið 2006 með Adam Hammil félaga sínum.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan