| HI

Ekkert gerst með Garreth Barry

Ekkert hefur verið gert upp á síðkastið til að reyna að fá Garreth Barry til liðs við Liverpool, en enskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Arsenal hafi nú áhuga á að fá hann. Þetta upplýsti Rafael Benítez í dag. Hann sagði jafnframt að hann vildi halda Xabi Alonso hjá Liverpool.

Fram hefur komið að Benítez var afar óánægður með hversu lítinn stuðning hann fékk frá Rick Parry forstjóra Liverpool til að kaupa Garreth Barry. Þetta var til þess að sambandið milli þeirra var stirðara, en fyrir nokkrum dögum héldu þeir fund þar sem loftið var hreinsað og eru þeir nú í góðu sambandi.

"Ég hef ekkert heyrt um að Arsenal vilji fá Garreth Barry. Það er það eina sem ég vil segja um það mál. Við vinnum nú að því að styrkja hópinn. Þá er ekkert meira að segja um framtíð Xabi Alonso. Við vorum í byrjun sumars að leita leiða til að afla fjár en nú erum við ánægðir með Alonso, enda er hann mjög góður leikmaður. Tilboð sem bárust í hann voru ekki nógu góð og af hverju ættum við þá að selja hann?"

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan