| Mummi

Nokkur sæti eftir í WBA ferð

Þá er komið að ferð númer 2 hjá Liverpoolklúbbnum á Íslandi í samstarfi við Úrval-Útsýn. Að þessu sinni verður farið á Liverpool - WBA á Anfield. Leikurinn fer fram þann 8.nóvember og að sjálfsögðu hafa meðlimir í klúbbnum forgang í ferðina.

Gist verður á hinu frábæra Radisson SAS hóteli sem er staðsett nálægt miðbæ Liverpool borgar og er steinsnar frá nýju og glæsilegu "Molli", þar sem einmitt nýja Liverpool búðin er. Láttu ekki hina rómuðu stemmningu sem er á Anfield fara framhjá þér í vetur.

Liverpool v WBA 7-10 nóvember

Flug
7. nóvember FI 440 KEF MAN 17:30 20:05
10. nóvember FI 441 MAN KEF 21:05 23:35

Gisting Radison SAS Liverpool 107 Old Hall Street. Frábært 4 stjörnu hótel á góðum stað miðsvæðis í borginni

Liverpool v WBA 8. nóvember kl. 17:30

Verð: 88.500 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, miði á leikinn, rútur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn

Aukagjald f. einbýli 24.500 kr.

Hægt er að bóka ferðina á netinu á www.uu.is undir íþróttir eða með því að senda mail á [email protected]
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan