| Sf. Gutt

Gareth Barry í sviðsljósinu í Laugardalnum

Nýjasti kafli sögunnar endalausu var skrifaður á Laugardalsvelli í kvöld. Enski landsliðsmaðurinn Gareth Barry var mikið í sviðsljósinu í Laugardalnum þegar Aston Villa lék við F.H. í Evrópukeppni félagsliða. Margir telja líkur á vistaskiptum hans til Liverpool hafa minnkað mikið í kvöld því Gareth lék allan leikinn með Villa. Hann gerði gott betur en það því hann skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins fjórar mínútur. Var til þess tekið, í enskum fjölmiðlum, að félagar hans fögnuðu honum vel eftir markið. Hinir eldfljótu Ashley Young og Gabriel Agbonlahor komu Villa í örugga forystu áður en Matthías Guðmundsson minnkaði muninn fyrir leikhlé. Daninn Martin Laursen gulltryggði 4:1 sigur enska liðsins í síðari hálfleik. Þess má geta að Brad Friedel fyrrum markvörður Liverpool stóð í marki Villa.

En aftur að Gareth Barry. Enskir fjölmiðlar fylgdust vel með hvort hann yrði í liði Villa í kvöld eða ekki og þar sem hann spilaði þá getur hann ekki spilað með öðru liði í Evrópukeppni fyrr en eftir næstu áramót. Leik Gareth Barry í kvöld telja flestir sparkspekingar til marks um það að hann verði áfram hjá Aston Villa að sinni. Hann getur að vísu enn haft vistaskipti til næstu mánaðarmóta en líklegra er talið að hann færi sig um set eftir áramót. Það er að segja fari hann eitthvað.

Martin O´Neill svaraði fyrir málefni Gareth Barry á blaðamannafundi eftir leikinn á Laugardalsvellinum og sagðist enn ekki vera viss um hvort Gareth veri eða fari. "Ég verð ekki viss hvað verður fyrr en lokað verður fyrir félagskipti. Ég spjallaði við hann fyrir leikinn og hann var vel stemmdur. Hann vildi spila og við vildum ekki leggja stein í götu hans með það. Hann vissi vel hvað afleiðingar það hefði ef hann spilaði og hann tók þessa ákvörðun sjálfur."

Líklega hefur verið fylgst með gangi mála á Laugardalsvellinum í Liverpool. Sem fyrr segir þá getur Gareth nú ekki spilað með Liverpool í Evrópukeppni fyrr en eftir áramót en líklega hefur Rafael Benítez enn jafn mikinn áhuga á að fá hann í liðið sitt. Segja má að hliðstæð saga hafi átt sér stað í Belgíu í gærkvöld þegar Xabi Alonso spilaði með Liverpool gegn Standard Liege. Þar með minnkuðu líkurnar á að hann færi frá Liverpool! Trúlega fer því hvorki Xabi eða Gareth frá núverandi félögum sínum í bili. Eða hvað?

Hér eru myndir úr leiknum af vefsíðu Aston Villa.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan