Af Ólympíuleikunum

Ryan Babel og Javier Mascherano munu mætast í 8-liða úrslitum í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna þegar Hollendingar og Argentínumenn leiða saman hesta sína. Lucas og félagar í Brasilíu mæta Kamerún.
Ryan Babel spilaði allan leikinn með Hollendingum í 1-0 sigri á Japan sem þýddi að þeir hollensku tryggðu sér annað sætið í sínum riðli. Þeir mæta því Argentínumönnum í 8-liða úrslitum þar sem Argentínumennirnir unnu sinn riðil.
Javier Mascherano spilaði allan leikinn í 2-0 sigri Argentínumanna á Serbíu og eins og áður sagði unnu þeir sinn riðil. Javier, sem var fyrirliði, spilaði óvenjulega stöðu í leiknum. Hann lék sem miðvörður og komst bara vel frá því hlutverki.
Lucas og félagar í Brasilíska landsliðinu unnu heimamenn í Kína 3-0 og tryggðu sér þar með sigur í C-riðli. Þeir mæta Kamerún á laugardaginn þegar 8-liða úrslitin hefjast. Á meðfylgjandi mynd má sjá Lucas í baráttunni um boltann við leikmenn Kína.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

