Af Ólympíuleikunum
Allir fulltrúar Liverpool spiluðu með liðum sínum á Ólympíuleikunum í Kína í dag. Einn skoraði og varð þar með, svo vitað sé, fyrsti leikmaður Liverpool til að skora á Ólympíuleikum.
Ryan Babel skoraði fyrsta markið leik Hollendinga og Bandaríkjamanna. Hann skallaði fyrirgjöf frá hægri á markið. Bandaríski markmaðurinn varði en Ryan náði frákastinu og skoraði af stuttu færi. Samkvæmt talningu þá er þetta sjöunda landsliðmarkið sem Ryan skorar. Hann hefur nú skorað tvö mörk í þremur leikjum en hann skoraði eitt mark um daginn í æfingaleik þegar Hollendingar unnu Kamerún 2:0. Í dag sneru Bandaríkjamenn stöðunni sér í hag með því að komast í 2.1 með mörkum frá Sacha Kliestan Jozy Altidore. Allt leit út fyrir tap Hollendinga fram á lokamínútu leiksins en þá tókst Gerald Sibon að jafna með skoti beint úr aukaspyrnu. Hollendingar hafa nú aðeins tvö stig eftir tvo leiki og óvíst er hvort þeir komast upp úr sínum riðli.
Lucas Leiva og félagar hans í brasilíska liðinu eru komnir áfram í átta liða úrslit eftir annan sigur sinn. Liðið vann öruggan 5:0 sigur á Nýja Sjálandi. Ronaldinho skoraði tvívegis og þeir Anderson, Alexandre Pato og Augusto Rafael Sobis bættu við þremur mörkum. Lucas lék allan leikinn og þótti standa sig vel.
Ólympíumeistarar Argentínu eru líka komnir áfram eftir 1:0 sigur á Áströlum. Javier Mascherano lék allan leikinn. Ezequiel Ivan Lavezzi skoraði eina markið í leiknum.
Samkvæmt því sem best er vitað er Ryan Babel fyrsti leikmaður Liverpool til að skora á Ólympíuleikum og fer hann þess vegna í sögubækur Liverpool!

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

