| Sf. Gutt

Mikill happafengur!

Rafael Benítez telur að það sé mikill fengur í Robbie Keane. Hann er viss um að írski framherjinn eigi eftir að auka möguleika Liverpool í sóknarleiknum.

"Robbie er einn besti sóknarmaðurinn í Úrvalsdeildinni. Hann er góður atvinnumaður og hefur mikinn skapstyrk. Ég er auðvitað ánægður með að hann er kominn hingað og aðrir framkvæmdastjórar myndu segja það sama í mínum sporum."

Rafael telur að Robbie eigi eftir að auka möguleika Liverpool í sóknarleiknum.

"Robbie getur leikið við hliðina á Fernando Torres og Dirk Kuyt. Hann getur líka spilað með Steven Gerrard. Hann getur spilað hægra megin auk þess að leiða sóknina. Hann er slægur sóknarmaður og það er alltaf gott fyrir framkvæmdastjóra að hafa svoleiðis leikmenn. Slíkir menn gera framkvæmdastjórum auðveldara fyrir. Ef maður stillir upp 4-4-2 þá getur Robbie spilað við hliðina á Fernando. Hann getur svo spilað fyrir aftan fremsta sóknarmann eða úti á hægri vængnum ef við notum 4-2-3-1. Hann getur leyst nokkrar stöður og leggur sig alltaf 100% fram."

Rafael hefur fylgst lengi með Robbie Keane og ekki minnkaði áhugi hans á Íranum þegar hann skoraði tvö mörk gegn Liverpool á Anfield Road á síðustu leiktíð. Robbie skoraði þá bæði mörk Spurs í 2:2 jafntefli.

"Hann skoraði tvívegis á Anfield á síðsutu leiktíð. Hann veit hvar hann á að vera til að koma sér í marktækifæri og hann veit líka hvert hann á að fara til að hjálpa samherjum sínum. Leikskilningur hans er mjög góður. Ég hef lengi vitað að hann er góður leikmaður. Mörkin sem hann skoraði gegn okkur undirstrikaði það sem við vissum fyrir um hann. Við vildum fá hann í okkar raðir. Hann sagðist vera stuðningsmaður Liverpool og vildi koma hingað. Við erum ánægðir og stuðningsmenn okkar eru það líka."

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan