| Ólafur Haukur Tómasson

Keane ætlar að vinna Úrvalsdeildina

Það hefur ekki farið fram hjá neinum stuðningsmanni Liverpool að Robbie Keane hefur gengið til liðs við félagið og er hann næst dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins. Það ríkir mikil ánægja í félaginu með að fá þennan frábæra leikmann. Á blaðamannafundi fyrr í dag var hann spurður hvort hann teldi það raunhæft að Liverpool ynni enska meistaratitilinn.

Hann svaraði á þessa vegu: "Ég held að við getum alveg klárlega barist við Manchester United og Chelsea. Ef maður skoðar liðið eins og það er í dag, ásamt nokkrum viðbættum leikmönnum, þá ætti ekki að vera nein ástæða fyrir því að við ættum ekki að geta barist um Englandsmeistaratilinn og aðra titla. Liverpool er gífurlega stórt félag og stuðningsmennirnir búast við því af okkur að við séum með í baráttu um titla. Ég kom hingað til að vinna titla."

Hinn ævilangi stuðningsmaður Liverpool var aðeins níu ára gamall þegar félagið vann sinn fyrsta titilinn. Á þeim tíma svaf hann með Liverpool rúmföt og gekk um í búningi félagsins.

"Ég var aðeins of ungur til að muna nákvæmlega eftir síðasta titlinum. Vonandi get ég átt þátt í því að vera hluti af liðinu sem að breytir stöðunni. Það yrði auðvitað mögnuð stund fyrir stuðningsmenn félagsins.

Öll fjölskylda mín styður Liverpool. Ég man eftir því að ég hafi beðið um treyjur og galla á hverjum jólum og það er frábært að núna fæ ég þetta allt saman frítt!"

Einnig var hann spurður hvað honum finndist um skiptikerfi liðsins. Hann segist ekki eiga í vandræðum með það.

"Ef maður vill vera sá besti þá verður maður að hafa stóran liðshóp. Á síðustu tímabilum hafa framkvæmdarstjórar mínir, Juande Ramos og Martin Jol, gert það.  Ég átti nokkur mjög góð tímabil þar. Það er undir stjóranum komið hvað hann vill gera en ég er hér fyrir liðið en ekki Robbie Keane."

Robbie Keane hlakkar einnig mikið til að spila við hlið Fernando Torres og telur að þeir tveir geti myndað baneitrað framherjapar, en hann segist þurfa að sýna Rafael Benítez að hann sé klár í það að spila við hlið framherja sem hann telur einn þann besta í heiminum.

"Mér tel að leikstíll Fernando og minn muni smella saman. Þetta er svipað og þegar ég spilaði við hlið Dimitar Berbatov þá vorum við stóri leikmaðurinn og smái leikmaðurinn. Fernando er mjög góður í loftinu og ég mun reyna að koma í eyðurnar svo að ég held að við getum bætt hvorn annan upp .

Það er þó auðvelt að segja það. Þetta snýst allt um að gera þetta og ég er viss um að við munum báðir leggja hart að okkur til að láta þetta ganga upp. Ég hef talað við stjórann, ekki um smáatriði eða eitthvað þess háttar, en frá mínu sjónarhorni þá er það undir mér komið að sanna að ég geti spilað í hverri viku.

Ég er ekki nægilega sjálfumglaður til að halda að ég muni labba beint inn í félagið og spila strax. Maður verður að vinna sér inn sæti í liðinu og ég er reiðubúinn að gera það. Ég gef mig alltaf 100% fram í hverri viku, og það mun aldrei breytast."

Robbie Keane fór með liðinu til Spánar og gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar liðið mætir Villareal á morgun. Margir stuðningsmenn félagsins eru væntanlega spenntir fyrir að sjá þennan magnaða leikmann spila sinn fyrsta leik í Liverpool treyju. Til gamans má segja frá því að hann skoraði tvö mörk gegn Liverpool á síðasta tímabili á Anfield en næstu mörk hans á Anfield munu hafa allt aðrar tilfinningar fyrir stuðningsmenn Liverpool.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan