| Ólafur Haukur Tómasson
Lucas Leiva var tólf sinnum í byrjunarliði Liverpool á síðasta tímabili, sem var jafnframt hans fyrsta tímabil í Úrvalsdeildinni, og hann segist ólmur vilja vinna sér inn fastara sæti í byrjunarliðinu og eiga meiri þátt í að hjálpa liðinu í að enda átján ára bið sína eftir Englandsmeistaratitlinum.
"Auðvitað verður þetta mjög erfitt en ég mun gera mitt besta til að fá reglulega sæti í byrjunarliðinu. Við stóðum okkur vel í seinni hluta tímabilsins í fyrra en okkur tókst ekki að vinna Englandsmeistaratitilinn. Vonandi munum við vinna hann á næsta tímabili og það er okkar markmið núna.
Ég held að verða Englandsmeistarar sé það sem að skiptir mestu máli vegna þess að það hafa verið átján ár síðan við vorum það síðast. Aðalmarkmiðið er að vinna eitthvað en það sem er mikilvægasta í dag er að vinna Úrvalsdeildina." sagði Lucas.
Lucas missir af nokkrum leikjum í byrjun tímabilsins þar sem að hann verður í liði Brasilíumanna á Ólympíuleikjunum sem að hefjast í næsta mánuði. Ásamt honum verða þeir Javier Mascherano, Ryan Babel og jafnvel Emiliano Insúa, þannig að mikil blóðtaka verður í liði Liverpool á þeim tíma.
TIL BAKA
Lucas vill ólmur spila meira
Lucas Leiva var tólf sinnum í byrjunarliði Liverpool á síðasta tímabili, sem var jafnframt hans fyrsta tímabil í Úrvalsdeildinni, og hann segist ólmur vilja vinna sér inn fastara sæti í byrjunarliðinu og eiga meiri þátt í að hjálpa liðinu í að enda átján ára bið sína eftir Englandsmeistaratitlinum."Auðvitað verður þetta mjög erfitt en ég mun gera mitt besta til að fá reglulega sæti í byrjunarliðinu. Við stóðum okkur vel í seinni hluta tímabilsins í fyrra en okkur tókst ekki að vinna Englandsmeistaratitilinn. Vonandi munum við vinna hann á næsta tímabili og það er okkar markmið núna.
Ég held að verða Englandsmeistarar sé það sem að skiptir mestu máli vegna þess að það hafa verið átján ár síðan við vorum það síðast. Aðalmarkmiðið er að vinna eitthvað en það sem er mikilvægasta í dag er að vinna Úrvalsdeildina." sagði Lucas.
Lucas missir af nokkrum leikjum í byrjun tímabilsins þar sem að hann verður í liði Brasilíumanna á Ólympíuleikjunum sem að hefjast í næsta mánuði. Ásamt honum verða þeir Javier Mascherano, Ryan Babel og jafnvel Emiliano Insúa, þannig að mikil blóðtaka verður í liði Liverpool á þeim tíma.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

