Stephen Darby vill fá að spila meira
Stephen Darby hefur staðið sig vel í æfingaleikjunum að undanförnu. Eftir að hafa fengið smjörþefinn af því að leika með aðalliðinu þá vill hann nú fá að spila meira með liðinu.
"Það hefur verið ótrúleg reynsla að spila með aðalliðinu núna á undirbúningstímabilinu. Þetta er það sem mig hefur dreymt um frá því ég var lítill strákur. Vonandi á ég eftir að fá fleiri tækifæri þegar leiktíðin hefst."
Stephen hefur hingað til leikið með yngri liðum Liverpool og varaliðinu. En hver er munurinn á þeim liðum og aðalliðinu?
"Aðalmunurinn, sem ég hef tekið eftir, felst í hraðanum og styrk leikmanna. En þeir Rafa, Sammy Lee og aðrir í þjálfaraliðinu eru og hafa alltaf verið boðnir og búnir til að hjálpa mér að taka framförum."
Stephen Darby er alinn upp hjá Liverpool. Hann þykir efnilegur varnarmaður og harður í horn að taka. Stephen var Ungligabikarmeistari með Liverpool árin 2006 og 2007. Fyrra árið var hann fyrirliði liðsins. Hann var svo fyrirliði varaliðsins sigursæla á síðustu leiktíð.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

