| Sf. Gutt

Andrea ætlar að láta að sér kveða

Ítalinn Andrea Dossena ætlar að láta að sér á Englandi með Liverpool. Ítalinn segist búa yfir mikilli ákveðni og vera nokkurs konar blanda af Ítala og Englendingi.

"Það er mikill heiður að klæðast svona merkri treyju. Auðvitað mun ég finna fyrir mjög sterkum tilfinningum þegar ég klæðist treyjunni í fyrsta sinn en eftir nokkrar sekúndur hætti ég að finna fyrir þeim tilfinningum og fer að einbeita mér að því sem ég er að gera.

Það eru svo margir frábærir leikmenn hérna og ég vonast til að geta farið að spila með þeim sem allra fyrst. Ég held að helsti styrkur minn sé hversu ákveðinn ég er. Ég bý yfir viljastyrk til að ná markmiðum mínum. Þennan skapstyrk hef ég líka séð í liði Liverpool. Ég er strax búinn að sjá á æfingum að enska knattspyrnan er öðruvísi. Hér skiptir mestu að halda boltanum innan liðsins og það er meiri hraði í leiknum. Leikmennirnir eru líka geysilega ákveðnir á æfingum. Svona er ég líka gerður. Mér finnst ég eiginlega vera hálfur Englendingur og hálfur Ítali."

Andrea Dossena mun vera hreinræktaður Ítali en vonandi kemur þessi lýsing hans á sjálfum sér heim og saman þegar hann fer að spila með Liverpool. Blanda ensks leikmanns og ítalsks er örugglega ekki það versta!

 

 

 

 






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan