Ungur Hollendingur keyptur
Í gær var tilkynnt um að Liverpool hefði gert samning við Hollendinginn unga Vincent Lucas Weijl. Liverpool fékk hann frá hollenska liðinu AZ Alkmar en hann er alinn upp hjá því félagi. Hann er seytján ára gamall. Vincent, sem er sóknarmaður, samdi við Liverpool til þriggja ára.
Vincent er þriðji ungliðinn sem Liverpool fær til liðs við sig það sem af er sumri. Daninn Nikola Saric var keyptur frá Herfölge og Ungverjinn Zsolt Pölöske kom sem lánsmaður frá MTK. Liverpool hefur fengið fjölda ungra og efnilegra leikmanna úr öllum heimshornum til sín síðustu tvö til þrjú árin. Markmiðið er að næla í einhverjar framtíðarstjörnur. Það ætti svo að koma í ljós á næstu árum hvort einhverjir af þessum strákum ná því að verða fastamenn í aðalliðinu.
Vincent Lucas Weijl er fjórði Hollendingurinn sem er nú á mála hjá Liverpool. Hinir eru Dirk Kuyt, Ryan Babel og Jordy Brouwer sem enn hefur ekki spilað í aðalliðinu.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

