| Sf. Gutt

Ólíklegt að David Villa komi

Rafael Benítez hefur lýst yfir áhuga sínum á því að fá David Villa, markakóng EM, til Liverpool en hann segir að það sé mjög ólíklegt að það verði af því. Allar líkur eru á því að David Villa verði áfram hjá bikarmeisturum Valencia. Rafa hafði þetta að segja um málið.

"Ég sagði um daginn að hann væri einn af þeim leikmönnum sem við hefðum áhuga á en á þessari stundu tel ég engar líkur á að við fáum hann til liðs við okkur. Við vitum að David Villa er mjög góður leikmaðu og við vitum hvað hann kostar. En við vitum líka hvaða leikmenn við höfum fyrir og getum notað. Ef við tökum þetta saman þá má segja að hann sé leikmaður sem við höfum áhuga á en núna eru ekki líkur á að hann komi til okkar."

 

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan