"Vil ekki Babel á ÓL"
Rafael Benítez segir að það gæti orðið stórt vandamál ef Ryan Babel verður valið í hollenska landsliðshópinn fyrir Ólympíuleikana í Peking í ágúst. Babel er farinn að æfa á ný eftir meiðsli, en hann reif liðbönd í ökkla á æfingu með hollenska landsliðinu í lok maí og missti þar með af Evrópukeppni landsliða.
Babel lék vel á sínu fyrsta tímabili með Liverpool og því er búist við miklu af honum í vetur. Og Benítez segir að það yrði mikið áfall að missa hann frá æfingum og keppni í mánuð vegna leikanna.
"Við erum auðvitað afar ánægð með að Ryan er farinn að æfa aftur," sagði Benítez við Liverpool Echo, en auk hans missir Benítez Lucas Leiva, Javier Mascherano og hugsanlega Emiliano Insua vegna knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna. "Hann er mikilvægur leikmaður fyrir okkur og hefur lagt hart að sér til að ná sér af meiðslunum sem hann varð fyrir með hollenska landsliðinu.
En við erum mjög áhyggjufullir því að eftir að hafa fengið hann heilan aftur er líklegt að við missum hann aftur ef hann er valinn til að keppa á Ólympíuleikunum. Þetta er mikið vandamál - við undirbúum hann og síðan fer hann í burt með landsliðinu. Þetta tímabil er mjög mikilvægt fyrir hann. Á sínu fyrsta tímabili var hann að aðlagast en nú hefur hann meiri reynslu og við viljum fá eitthvað frá honum frá byrjun svo að það er mjög mikilvægt að hann fari að vinna með liðinu."
Ef Babel fer til Peking með Hollendingum missir hann af útileiknum gegn Sunderland í deildinni 16. ágúst og heimaleiknum gegn Middlesborough viku síðar. Auk þess gæti hann ekki leikið með í forkeppni meistaradeildarinnar.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

