| Sf. Gutt

Hin liðin

Umfjöllunin um hin liðin endar með skoðun á gengi kvennaliðs Liverpool. Stelpurnar okkar náðu helsta markmiði sínu á leiktíðinni og það var að festa sig í sessi í efstu deild en liðið vann sér sæti í henni fyrir ári. 

Deildarkeppni kvenna á Englandi er svæðisskipt og Liverpool spilar í norðurriðli. Þó að liðið hafi náð því markmiði sínu að halda sér í deildinni olli árangurinn nokkrum vonbrigðum en liðið hafnði í þriðja neðsta sæti deildarinnar. Mikil uppstokkun átti sér stað eftir að leiktíðinni lauk og David Bradley þjálfara liðsins var sagt upp störfum. Búið er að ráða nýjan þjálfara.  

 

 

 

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan