Hin liðin
Aðallið Liverpool er aðeins toppurinn á ísjakanum. Varaliðið og yngri lið félagsins skipa líka mikilvægan sess í starfi félagsins. Í þeim liðum fer fram starf sem miðar að því að ala upp leikmenn sem vonandi verða, einn góðan veðurdag, nógu góðir til að leika með aðalliðinu. Næstu daga verður árangur undir 18 ára liðsins, varaliðsins og kvennaliðsins, á síðustu leiktíð, lauslega rakinn hér á Liverpool.is. Við byrjum á undir 18 ára liðinu.
Undir 18 ára liðinu gekk ekkert sérstaklega vel á leiktíðinni. Liðið hafnaði í fimmta sæti af tíu liðum. Liverpool hlaut 43 stig í 28 leikjum. Manchester City vann deildina með yfirburðum líkt og árið áður. Liðið hlaut 67 stig. Everton kom næst með 58 stig. Leiktíðina 2006/2007 lenti Liverpool í áttunda sæti þannig að árangur liðsins á þessari sparktíð var í áttina. Vörnin var veikleiki liðsins en sóknarleikurinn gekk mun betur öfugt við það sem var leiktíðina á undan. Liðið byrjaði reyndar vel en það hallaði undan fæti á lokakaflanum. Hinn reyndi Hughie McAuley þjálfaði liðið.
Markahæsti maður liðsins var Nathan Ecclestone. Hann vakti mikla athygli og raðaði inn mörkum. Alls skoraði hann 18 mörk í 30 leiknum. Nathan fékk smjörþefinn að varaliðinu og lék einn leik með því og skoraði í honum. Marvin Pourie, sem er þýskur, skoraði 12 mörk. Þessir tveir skoruðu lang flest mörk en næsti maður skoraði aðeins fjögur mörk. Flesta leiki léku þeir David Amoo og Joe Kennedy. Þeir léku 31 leik í öllum keppnum. Alls léku 33 leikmenn fyrir liðið á leiktíðinni.
Liðið hafði Unglingabikarinn að verja eftir sigur í keppninni árin 2006 og 2007. Liðið hóf vörnina á leik við sterkt lið Arsenal. Liverpool vann þann leik 1:0 en féll úr keppni á útivelli í næstu umferð eftir framlengdan leik við Sunderland. Það tókst því ekki að vinna Unglingabikarinn þriðja árið í röð og reyndar má segja að það hefði verið kraftaverk því flestir leikmenn liðsins, sem unnu keppnina tvö ár í röð, eru orðnir of gamlir til að spila með unglingaliðinu.
Ef nefna ætti efnilegustu leikmenn liðsins í þessum aldursflokki þá má nefna að þeir Gary Mackay-Steven og Steven Irwin, sem var fyrirliði liðsins, voru færðir til í sumar og æfa nú á Melwood með aðal- og varaliðinu. Markakóngurinn Nathan Ecclestone er talinn mjög efnilegur og það verður gaman að sjá til hans á næstu árum. Það eru margir efnilegir ungir leikmenn í liðinu en það á eftir að koma í ljós hversu margir þeirra eiga eftir að verða það góðir að þeir geti látið til sín taka í aðalliðinu. Vonandi verða þeir sem flestir.

Nathan Ecclestone

Marvin Pourie

Gary Mackay-Steven
Steven Irwin
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

