Insua skrifar undir nýjan samning
Emiliano Insua, vinstri bakvörðurinn efnilegi, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Liverpool.
Emiliano hefur spilað fimm leiki með aðalliðinu og hefur þótt standa sig ágætlega í þeim leikjum. Nýr samningur hans gildir þá til ársins 2011. Samningurinn ætti að benda til þess að Rafael Benítez hafi mikið álit á þessum strák.
Insua var mikilvægur leikmaður í varaliði félagsins sem varð Englandsmeistari á síðustu leiktíð og hann spilar einnig reglulega fyrir U-20 ára landslið Argentínu. Hann varð heimsmeistari í þeim aldurflokki á síðasta ári. Emiliano lék síðustu þrjá deildarleiki Liverpool á liðinni leiktíð.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

