Paul Ince ráðinn framkvæmdastjóri Blackburn
Paul Ince, fyrrum leikmaður Liverpool, var um helgina ráðinn framkvæmdastjóri Blackburn Rovers. Hann er fyrsti enski blökkumaðurinn til að stýra liði í Úrvalsdeildinni ensku. Paul gerði fjögra ára samning við Blackburn og tekur við af Mark Hughes fyrrum félaga sínum í Manchester United sem tók við Manchester City nú fyrr í sumar.
Nýliðin leiktíð var sérlega góð fyrir Paul Ince. Hann stýrði Milton Keynes Dons til sigurs í fjórðu deildinni, ef allar atvinnumannadeildirnar fjórar á Englandi eru taldar, og að auki vann liðið bikarkeppni neðri deilda. Þetta var fyrsta leiktíð hans með liðinu en hann hóf framkvæmdastjóraferil sinn hjá Macclesfield og hann bjargaði liðinu frá falli úr fjórðu deild. Þótti það vel af sér vikið.
Paul Ince lék 81 leik með Liverpool á árunum 1997 til 1999. Hann skoraði seytján mörk fyrir Liverpool. Paul lék líka með West Ham United, Manchester United, Inter Milan, Middlesbrough, Wolves, Swindon Town og Macclesfield Town. Paul lék 53 landsleiki með enska landsliðinu og skoraði tvö landsliðsmörk. Paul varð fyrstur blökkumanna til að leiða enska landsliðið sem fyrirliði.
Paul Ince hefur búið í Liverpool frá því hann lék með Liverpool. Nú í vor fékk Thomas sonur hans samning við Liverpool en hann hefur æft með unglingaliðum Liverpool síðustu árin. Hann verður í undir 18 ára liði Liverpool á næstu leiktíð.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

