Af EM
Spánverjar grófu alla drauga fortíðar, í Vín höfuðstað Austurríkis, sem tengdust deginum í dag og slógu heimsmeistara Ítala út úr Evrópukeppni landsliða. Mikil álög áttu að liggja á deginum enda hafa vonir Spánverja um stórtitla eigi sjaldar en þrisvar endað 22. júní en svo varð ekki nú og þeir komust í undanúrslit á Evrópumótinu.
Fernando Torres kom inn í byrjunarlið Spánverja eins og allir sterkustu menn liðsins eftir hvíld í síðasta leik riðlakeppninnar. Þeir Jose Reina, Alvaro Arbeloa og Xabi Alonso máttu allir víkja og taka sæti á bekknum. Leikurinn var aldrei mikið fyrir augað. Spánverjar sóttu meira og reyndu hvað þeir gátu til að finna höggstað á vörn heimsmeistaranna en það gekk illa. Fernando Torres var duglegur í sókninni en varnarmenn Ítala gættu hans vel. Honum var svo skipt af velli fyrir Daniel Guiza á 85. mínútu. Þessi ákvörðun Luis Aragones landsliðþjálfara kom flestum á óvart en Daniel var sprækur eftir að hann kom til leiks. Marcos Senna átti hættulegasta færi Spánverja seint í venjulegum leiktíma. Gianluigi Buffon varði fast skot hans en missti boltann sem fór í stöng. Framlengingin gaf ekkert af sér og því varð að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar fór Iker Casillas á kostum og varaði tvær af vítaspyrnum Ítala. Spánverjar misnotuðu eina spyrnu en það kom ekki að sök því þeir unnu 4:2. Cesc Fabregas skoraði úr spyrnunni sem réði endanlega úrslitum. Sigur Spánverja var sanngjarn því þeir sóttu meira og reyndu allan tímann að spila til sigurs. Spánverjar fögnuðu gríðarlega enda langt um liðið frá því þeir hafa komist svo langt á stórmóti. Ekki spillti það gleði spænskra að þetta var í fyrsta sinn frá árinu 1920 sem þeir vinna sigur á Ítalíu á stórmóti!
Spánverjar mæta Rússum í undanúrslitum á fimmtudaginn. Það verður í annað sinn sem þjóðirnar leiða saman hesta sína á Evrópumótinu. Þær mættust í riðlakeppninni og þá unnu Spánverjar öruggan sigur 4:1. Verður það sama uppi á teningum aftur eða hefna Rússar?
Hér eru myndir úr leiknum af vefsíðu BBC.
Nú liggur ljóst fyrir hvaða þjóðir mætast í undanúrslitum Evrópukeppni landsliða.
Miðvikudagur: Tyrkland og Þýskaland
Fimmtudagur: Rússland og Spánn
Báðir leikir hefjast klukkan 18:45 að íslenskum tíma og verða þeir sýndir í Ríkissjónvarpinu eins og aðrir leikir keppninnar hingað til.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

