Landsliðsfréttir
Í gærkvöldi fóru nokkrir æfingalandsleikir fram. Fyrrum leikmenn Liverpool fóru kátir heim úr Laugardalnum. Tveir núverandi leikmenn Liverpool skoruðu. Annar skoraði eftir sendingu frá hugsanlega tilvonandi liðsfélaga sínum.
John Toshack landsliðþjálfari Wales og aðstoðarmenn hans, Roy Evans og Dean Saunders, lögðu á ráðin fyrir vináttuleikinn í Laugardalnum við Íslendinga. Ráðabrugg þessara fyrrum leikmanna Liverpool gekk upp því Veilsverjar unnu 1:0. Ched Evans, leikmaður Manchester City, skoraði eina mark leiksins á 45. mínútu með glæsilegri hælspyrnu. Markið var sannarlega sögulegt fyrir hann því þetta var fyrsti landsleikur hans og það sem meira var hann skoraði með sinni fyrstu snertingu í landsliðsbúningi Wales. Hann kom inn sem varamaður rétt áður. Fyrr í vikunni sagðist hann ekki hafa hugmynd um hvar Ísland væri! Hann mun sennilega ekki gleyma hvar Ísland er hér eftir. Craig Bellamy lék sinn fyrsta leik á árinu þegar hann kom inn sem varamaður í síðari hálfleik. Þetta var 50. landsleikur hans. John Toshack sagði eftir leikinn að Wales hefði sloppið vel með að ná sigri og jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit.
Steven Gerrard var besti leikmaðurinn á Wembley leikvanginum þegar enskir unnu Bandaríkjamenn 2:0. Fyrirliði enska landsliðsins John Terry skoraði fyrra markið með skalla í fyrri hálfleik. Steven innsiglaði svo sigurinn í síðari hálfleik. Hann skoraði þá, 13 landsliðmark sitt, með nákvæmu skoti frá vítateig eftir að hafa komist einn í gegn. Gareth Barry átti sendinguna á hann.
Þetta er kannski samvinna sem á eftir að sjást hjá Liverpool á næstu leiktíð! Peter Crouch kom inn á sem varamaður. David James fyrrum leikmaður Liverpool stóð í markinu. Stephen Warnock var varamaður en kom ekki við sögu.
Norðmenn tóku á móti Úrugvæum í Osló. Luis Suarez kom Úrúgvæ yfir en Tarik Elyounoussi jafnaði. Sebastian Eguren kom gestunum aftur yfir. Allt leit út fyrir fyrir sigur Úrúgvæ þar til John Arne Riise tók til sinna ráða fimm mínútum fyrir leikslok. Hann skoraði þá með bylmingsskoti eftir aukaspyrnu og tryggði Norðmönnum jafntefli. Líklega hefur markið kætt hann eftir erfiðar undanfarnar vikur.
Hér eru myndir úr landsleikjunum af vefsíðu BBC. Þar eru meðal annars myndir úr landsleik Íslendinga og Veilsverja.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

