Ég mun bara bæta mig
Lucas Leiva segir að hann muni aðeins koma til með að bæta sig og segir að hann hafi lítið getað sýnt sitt rétta andlit á nýliðnu tímabili. Það er þó ekki hægt að segja að hans fyrsta tímabil hafi gengið verið lélegt af hans hálfu.
Lucas spilaði alls 31 leik á tímabilinu og segir hann að það hafi tekið sinn tíma að aðlagast enska boltanum. Hann trúir því hinsvegar að hann hafi hægt og rólega náð tökum á hraða leiksins og er hann vongóður um að sú reynsla muni nýtast honum vel á komandi tímabili.
,,Mér fannst virkilega gaman á mínu fyrsta tímabili hjá Liverpool," sagði Lucas. ,,Að spila 31 leik fyrir félag eins og þetta á sínu fyrsta tímabili er eitthvað sem ég er stoltur af vegna þess að það er ekki auðvelt að aðlagast fótbolta í nýju landi. Ég spilaði ekki neinn leik fyrstu þrjá mánuði vegna þess að ég var ennþá að venjast hlutunum og nú líður mér mun betur á vellinum og vonandi verður næsta tímabil ennþá betra."
,,Enski boltinn er mikið öðruvísi og ég þurfti að læra fljótt. Ég talaði mikið við Steven Gerrard, Xabi Alonso og Javier Mascherano vegna þess að þeir vita hvað þarf til að spila mína stöðu á Englandi og þeir hafa hjálpað mér mikið. Ég reyndi að gera réttu hlutina og læra af þeim vegna þess að þeir eru leikmenn sem láta manni líða betur þegar maður spilar með þeim."
,,Ég held að ég hafi bætt mig eftir því sem leið á tímabilið vegna þess að ég sótti ekki eins mikið framávið og ég hefði viljað fyrst um sinn. Ég var að venjast og var ekki með mikið sjálfstraust á vellinum. En eftir því sem leið á tímabilið þá bætti ég mig og vonandi verður næsta tímabil betra."
Nú þegar flestir leikmannana eru að njóta þess að vera í fríi sér Lucas ekki fram á að fá mikið frí í sumar. Hann er í risastórum 74 leikmanna hóp hjá Brasilíu fyrir Ólympíuleikana í Beijing í sumar og ef hann verður í lokahópnum mun hann missa af fyrstu leikjum tímabilsins hjá Liverpool. Leikirnir á Ólympíuleikunum eru frá 8.-24. ágúst og þar sem búist er við því að Lucas verði valinn mun hann missa af fyrstu deildarleikjunum sem og leikjunum í undankeppni Meistaradeildarinnar.
Hann sagði: ,,Þetta er mjög erfitt því enginn vill missa af leikjum hjá sínu félagi. En Ólympíuleikarnir eru mjög mikilvægir í Brasilíu og ef ég vil spila í undankeppni Heimsmeistaramótsins þá hef ég ekki efni á því að missa af þessari keppni. En ef ég fer þá vonast ég til þess að öðlast meiri reynslu og vonandi þroskast sem leikmaður og það er bara gott fyrir mig og Liverpool."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

