| AB

Degen til Liverpool

Liverpool hefur staðfest fyrstu kaup sumarsins sem er svissneski bakvörðurinn Philipp Degen frá Dortmund.

Hann mun skrifa undir samning við Liverpool 1.júlí og mun ekki kosta krónu því samningurinn hans við Borussia Dortmund rennur út í sumar. Degen er 25 ára hægri bakvörður og mun spila með svissneska landsliðinu í EM í sumar.

Benítez hafði þetta að segja um kappann: "Philipp er enn ungur en hefur aflað sér reynslu úr Bundesligunni með Borussia Dortmund og svissneska landsliðinu. Hann lék einnig í Meistaradeildinni með Basel og er því vanur knattspyrnu í hæsta gæðaflokki. Hann er sókndjarfur leikmaður sem er mjög kraftmikill og býr yfir sigurvilja. Hann er sterkur sóknarlega og ég er viss um að hann muni reynast okkur vel."

Degen hlakkar til að koma til Liverpool: "Þegar ég fékk tilboðið frá Liverpool lék enginn vafi á að ég myndi samþykkja það. Liverpool er eitt af stærstu félögum heims og ég hlakka til að spila þar og í Úrvalsdeildinni sem er sterkasta deild í heimi."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan