| Sf. Gutt

Fyrrum leikmaður Liverpool vinnur titil

Paul Ince, fyrrum leikmaður Liverpool, vann sinn fyrsta titil sem framkvæmdastjóri í gær þegar Milton Keynes Dons vann bikarkeppni neðrideildarliða. Liðið vann 2:0 sigur á Grimsby Town á Wembley. Keith Andrews skoraði fyrra markið úr víti og Sean O´Hanlon innsiglaði sigurinn.

Paul var auðvitað ánægður eftir sigurinn. "Þetta er fyrsti titillinn sem ég hef unnið sem framkvæmdastjóri. Þetta hefur verið löng vegferð hjá okkur. Við lékum gegn nokkrum sterkum liðum á leiðinni en mér finnst að við getum veitt öllum liðum verðuga keppni."

Paul Ince er búinn að ná athyglisverðum árangri sem stjóri. Hann hóf stjóraferil sinn hjá Macclesfield en söðlaði svo um og fór til Milton Keynes Dons. Liðið er nú í öðru sæti í fjórðu deild, ef allar atvinnumannadeildirnar fjórar á Englandi eru taldar, og á góða möguleika á að komast upp um deild í vor.

Fyrir þá sem ekki vita þá var Milton Keynes Dons stofnað upp úr Wimbledon sem lék í efstu deild um tíma. Liðið vann F.A. bikarinn árið 1988 eftir 1:0 sigur á Liverpool. Nokkrum árum eftir að liðið féll úr efstu deild flutti það höfuðstöðvar sínar og það endaði með því að félagið fékk nýtt nafn. Þetta er fyrsti titillinn sem félagið vinnur undir nýju nafni.

Paul Ince lék 81 leik með Liverpool á árunum 1997 til 1999. Hann skoraði seytán mörk fyrir Liverpool.

 

 

  

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan