Rick Parry vill lausn á málum Liverpool F.C.!
Rick Parry vill lausn á eigendamálum Liverpool Football Club og það sem fyrst. George Gillett tjáði sig loksins um ósamlyndi þeirra Tom Hicks nú fyrir helgina. Þar með hafa báðir eigendur Liverpool staðfest ágreining sinn opinberlega. Rick telur að þeir George og Tom verði að leysa málin með einhverju móti og það sem fyrst!
"Ef þeir geta ekki átt félagið saman þarf að finna lausn. Annar gæti keypt af hinum og eins gætu báðir selt sinn hlut. Það eru ekki mikið fleiri möguleikar í stöðunni en það er ljóst að óbreytt staða er mjög erfið.
Lykillinn að velgengni er að það sé eining í stjórn félagsins og félaginu sjálfu. Það verða allir að stefna í sömu átt. Án einingar verður mjög erfitt að ná framþróun. Það er alveg ljóst af því sem George sagði að eining er ekki til staðar. Maður þarf að íhuga vel og lengi svona yfirlýsingu eins og þá sem George lét frá sér fara á föstudaginn. Yfirlýsing hans tekur af allan vafa um ástandið. Þetta ástand hefur ríkt alltof lengi. Það besta væri ef lausn finndist og það sem allra fyrst."
Rick Parry lét þessi orð falla í viðtali við útvarpsstöð BBC. Það að hann skuli tjá sig um eigendur Liverpool verða að teljast mikil tíðindi því hann hefur hingað til ekkert sagt um málefni þeirra. Nú er að sjá hvað gerist. Í síðustu viku voru nokkrar vangaveltur í fjölmiðlum um að fjárfestingarfyrirtækið í Dúbæ væri ekki hætt að reyna að eignast hlut í Liverpool F.C.!
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

