Mascherano sektaður
Javier Mascherano hefur viðurkennt að hafa brotið af sér með viðbrögðum sínum eftir brottvísunina gegn Manchester United. Liverpool hefur sektað hann um tveggja vikna laun og hefur Mascherano sjálfur óskað eftir því að upphæðin fari til góðgerðarmála.
Hvað enska knattspyrnusambandið gerir í máli hans liggur hins vegar enn ekki fyrir. Hann á að mæta í skýrslutöku hjá sambandinu á fimmtudaginn kemur vegna málsins og eftir það kemur væntanlega í ljós hversu langt leikbann hann fær. Ljóst er að hann verður í leikbanni gegn Everton á sunnudaginn en hversu miklu verður bætt við er ekki ljóst.
Rafael Benítez sagði á blaðamannafundi í dag að Mascherano hefði beðist afsökunar og viðurkennt mistök sín. Um lengd bannsins sagði hann hins vegar: "Mascherano er frábær atvinnumaður og leikmaður félagsins hafði ekki hingað til fengið rautt spjald í deildinni í vetur. Þetta voru sérstakar aðstæður og allir voru undrandi en hann veit af mistökum sínum."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

