| Sf. Gutt

Framtíðin er björt!

Varalið Liverpool vann frækinn sigur á Dallas mótinu nú um páskana. Liðið vann alla fimm leiki sína á mótinu. Leikmenn voru á skotskónum og markatala liðsins var 26:3! Craig Lindfield skoraði flest mörk eða sex talsins. Glæsileg framganga liðsins gladdi Rafael Benítez mikið.

"Þetta er skemmtileg keppni og það er alltaf gaman að sjá unga leikmenn vinna bikara. Aðalmarkmið varaliðsins er að ala upp leikmenn sem munu í framtíðinni skila sér í aðalliðið. En það er alltaf jákvætt þegar þessir strákar vinna titla.

Gary Ablett hefur gert góða hluti með liðið. Allir þeir sem koma að þjálfuninni hafa unnið gríðarlega vel með þessa ungu leikmenn. Liðið er núna í efsta sæti í varaliðsdeildinni og framtíðin virðist björt."

Liverpool spilar í næstu viku í varaliðsdeildinni. Þá verður stórleikur á dagskrá þegar Liverpool og Everton leiða saman hesta sína.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan