| Sf. Gutt

Varaliðið sigursælt í Bandaríkjunum

Varalið Liverpool var sigursælt í Bandaríkjunum nú um páskana. Liðið vann þar svokallaðan Dallas bikar. Á mótinu er keppt í nokkrum aldursflokkum og lék Liverpool í elsta flokkunum en þar léku 19 ára strákar. Liðið vann alla fimm leiki sína á mótinu og á páskadag sigraði liðið Tigers frá Mexíkó 3:0 í úrslitaleik mótsins. Leikmenn Liverpool voru sannarlega á skotskónum í Texas því alls fagnaði liðið 26 mörkum!

Liverpool vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppni mótsins en þeir fóru fram í dymbilvikunni. Fyrst vann Liverpool 7:1 sigur á Slavija frá Bosníu. Gerardo Bruna og Ray Putterill skoruðu þrívegis og þeir Craig Lindfield, Ryan Flynn og Jay Spearing skoruðu hin mörkin. Næst vann liðið 5:1 sigur á Tigers frá Mexíkó en þessi lið mættust svo í úrslitaleik mótsins. Craig Lindfield skoraði þrennu og þeir Martin Kelly og Mikel San Jose skoruðu eitt mark hvor. Liverpool rótburstaði svo japanska liðið Ryutsu Keizai Kashiwa 9:0! Craig Lindfield, Ray Putterill and Emiliano Insua skoruðu allir tvívegis en þeir Mikel San Jose, Ryan Flynn og Gerardo Bruna sáu um afganginn af mörkunum.

Erfiðasti leikur liðsins var líklega undanúrslitaleikurinn en þá mætti Liverpool Benfica á föstudaginn langa. Liverpool vann 2:1 með mörkum þeirra Andras Simon og Ryan Flynn. Liverpool lék svo gegn Tigers í úrslitaleik mótsins. Liverpool vann öruggan sigur 3:0. Krisztian Nemeth skoraði tvö mörk og Martin Kelly eitt.

Tom Hicks, annar eigandi Liverpool, afhenti Stephen Darby fyrirliða Liverpool sigurlaunin eftir úrslitaleikinn. Tom var kampakátur við þá iðju enda allir titlar sem falla Liverpool í skaut vel þegnir.

Hér má sjá ýmislegt um Dallas mótið á heimsíðu mótsins... 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan