Ég klikkaðist!
Javier Macherano skoraði fyrsta mark sitt fyrir Liverpool með stórglæsilegum hætti gegn Reading um helgina. Sumir samherja hans voru ekki hrifnir af fagnaðarlátum hans.
"Þetta var ótrúlegt augnablik. Ég hafði ekki skorað mark síðan ég lék fyrir River Plate og það að skora mark fyrir Liverpool og fyrir framan Kop var mjög sérstakt. Ég get vart lýst tilfinningunni. Sumir strákanna í búningsklefanum sögðu að fagnaðarlætin hefðu verið lík því þegar Inzaghi skoraði gegn okkur í úrslitum Meistaradeildarinnar."
Benítez hefur sagt að Masherano ætti að skora fleiri mörk en Argentínumaðurinn heldur að það sé vart raunhæf krafa:
"Ég held að stjórinn hafi verið að grínast. Það væri gaman að skora fleiri mörk en ég held að það séu ekki margir varnartengiliðir sem skora fjölda marka. Maður verður að leika djúpt og halda jafnvæginu innan liðsins sem er mér mikilvægast. Ég mun reyna að skora fleiri mörk en ég verð fyrst að sinna mínu starfi."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

