| Sf. Gutt

Af Afríkukeppninni

Malí lék sinn annan leik í Afríkukeppninni í gærkvöldi. Mohamed Sissoko lék ekki með Malí í fyrsta leiknum en nú fékk hann tækifæri. Hann var í byrjunarliði Malí gegn Nígeríu. Leiknum lauk án marka og Momo lék í 82 mínútur.

Í hinum leik riðilsins vann Fílabeinsströndin öruggan 4:1 sigur á Benín. Malí á nú óvænt alla möguleika á að komast upp úr riðlinum. Búist var við því að Fílabeinsströndin og Nígería myndu komast áfram. Fílabeinsströndin er reyndar komin áfram með sex stig en Nígería er aðeins með eitt stig. Malí hefur fjögur stig og dugar jafntefli í síðustu umferðinni gegn Fílabeinsströndinni til að komast áfram. Það gæti orðið erfitt. Nígería á síðasta leik við Benín og má reikna með sigri Nígeríu í honum. Malí er því langt frá því öruggt áfram en möguleikarnir eru í þeirra höndum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan