| Sf. Gutt

Af Afríkumótinu

Afríkumótið hélt áfram í dag. Landsliðið sem inniheldur Mohamed Sissoko, fulltrúa Liverpool, hóf leik. Malí lék Benín og vann nauman sigur 1:0. Frederic Kanoute, sem spilar með Sevilla, skoraði eina markið úr vítaspyrnu. Mohamed Sissoko sat á varamannabekknum allan tímann. Í hinum leik riðilsins vann Fílabeinsströndin 1:0 sigur á Nígeríu. Salomon Kalou, framherji Chelsea, skoraði sigurmarkið. Þessar þjóðir eru taldar sigurstrangleastar í riðlinum.

 

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan