Martin fjallar um komu sína til Liverpool
Martin Skrtel gekk formlega til liðs við Liverpool í fyrradag. Liverpool borgaði Zenit frá Pétursborg 6,5 milljónir sterlingspunda fyrir Slóvakann. Hér tjáir Martin sig um nokkur atriði í sambandi við vistaskipti sín.
Um Liverpool...
"Þó svo að ég hafi ekki verið neinn sérstakur aðdáandi Liverpool þá hef ég horft mikið á knattspyrnu og allir þekkja félagið."
Um að spila á Anfield...
"Ég hlakka til að spila minn fyrsta leik á Anfield og leika fyrir framan stuðningsmenn Liverpool. Ég get hreinlega ekki beðið. Ég er búinn að koma á Anfield sjá þennan fallega leikvang. Ég bíð í ofvæni eftir að sjá leikvanginn fullan af áhorfendum."
Um Rafael Benítaz....
"Framkvæmdastjórinn vildi fá mig hingað og sú staðreynd skipti mig miklu máli. Mér fannst hann vera vingjarnlegur maður og Rafa réði miklu um þá ákvörðun mína að koma til Liverpool."
Um að vera dýrasti varnarmaður í sögu Liverpool...
"Ég er bara leikmaður og vil ekki velta því neitt fyrir mér hversu há upphæð var borguð fyrir mig. Allt slíkt er mál framkvæmdastjórans og stjórnar félagsins."
Um samkeppnina við aðra varnarmenn...
"Auðvitað veit ég að það er hart barist um sæti í liðinu. Jamie Carragher, Sami Hyypia og Daniel Agger eru gríðarlega góðir leikmenn. Ég mun gera mitt besta til að komast sem allra fyrst í liðið. Það er öllum liðum hollt að hafa samkeppni um allar stöður. Rafa hefur svo sem ekki, hingað til, sagt mér mikið um mitt hlutverk."
Um svefntruflanir...
"Venjulega á ég ekki í neinum erfiðleikum með að sofa en ég var svo spenntur á laugardagskvöldið að ég ætlaði ekki að geta sofnað."
Um íshokkí...
"Ég spilaði oft íshokkí þegar ég var yngri. Þegar ég spilaði hjá Zenit þá leyfði framkvæmdastjórinn mér að spila íshokkí í vetrarfríinu. En nú þegar ég er kominn til Liverpool verð ég að hætta því."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

