| AB

Martin Skrtel skrifar undir hjá Liverpool

Slóvakinn Martin Skrtel er nýjasti liðsmaður Liverpool FC og líkir Rafa honum við Jamie nokkurn Carragher.

Skrtel er fæddur 15. desember 1984 og er 193 sentímetrar á hæð. Hann hefur leikið 15 landsleiki fyrir Slóvakíu.

Rafa var í skýjunum í dag yfir að hafa hreppt þennan öfluga varnarmann: "Hann er ekki þekktur leikmaður en hann lék gegn Everton fyrir Zenit St Petersburg. Hann er miðvörður sem ætti að eiga heima í enska boltanum. Hann er árásargjarn, snöggur, góður skallamaður og mjög góður leikmaður fyrir framtíðina sem og nútíðina. Hann er andlega mjög sterkur og er líkur Carra að því leyti, hann gefst aldrei upp. Útsendarar okkar komu auga á hann fyrst þegar hann lék með slóvaska landsliðinu og við höfum fylgst með honum allt þetta tímabil.

Skrtel er þó ekki í nógu góðri leikæfingu: "Hann er ekki reiðubúinn fyrir leikinn gegn Middlesbrough því að rússnesku deildinni lauk fyrir rúmum mánuði og síðasti leikurinn sem hann lék var í desember í Evrópukeppni félagsliða. Hann er það góður að ég mun láta hann leika eins fljótt og mögulegt er, sagði Rafa að lokum."

Skrtel er talinn hafa kostað Liverpool 6,5 milljónir punda sem er metupphæð sem Liverpool hefur greitt fyrir varnarmann. Hann verður með treyju númer 37 á Anfield.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan