| HI

Benítez um slæmt gengi á heimavelli

Rafael Benítez segist ekki geta útskýrt hvers vegna svo illa hefur gengið á heimavelli í vetur. Með jafnteflinu gegn Wigan eru þau orðin fleiri á heimavelli en sigrarnir, þó að vissulega hafi það sitt að segja að þrjú efstu liðin hafa nú þegar leikið á Anfield. Það sem er kannski meira svekkjandi er að liðin í öðru, þriðja og fjórða sæti í deildinni nú, þ.e. Man. Utd., Chelsea og Man. City, hafa öll tapað fleiri leikjum en Liverpool.

Benítez segir að það sem helst valdi því að Liverpool er nú tólf stigum á eftir Arsenal sé að í mörgum leikjum hafi gengið illa að nýta færin. "Það er erfitt að útskýra hvers vegna okkur gengur ekki vel á heimavelli. Við stjórnum leikjum, við sendum boltann vel á milli okkar og stjórnum nánast öllu. En okkur er refsað fyrir ein mistök.

Það er engin þörf á því að greina leikina fjóra yfir hátíðirnar. Við hefðum verðskuldað sigur gegn Manchester City og Wigan og unnum Portsmouth og Derby. En við töpuðum fjórum stigum í þessum leik og því hefur bilið breikkað. Það hefur ekkert upp á sig að gagnrýna frammistöðuna mikið. Við vitum að við vorum mun betra liðið gegn City og Wigan en við vitum við verðum að vinna leiki, svo einfalt er það."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan