| AB

Vill nýjan samning

Rafa segist vera ánægður eftir fundinn með Gillett og Hicks og það er ekkert farasnið á honum. Hann er fullur bjartsýni þrátt fyrir þrjú töp í síðustu fjórum leikjum:

"Mér líður vel. Ég vil gjarnan sjá út samning minn og framlengja hann ef mögulegt er. Fjölskyldu minni líður vel hér og maður nýtur ótrúlegrar virðingar og þakklætis frá fólkinu hérna. Við erum nær því að vinna titillinn. Við erum með átta stigum fleiri en á sama tíma í fyrra og komumst áfram í Meistaradeildinni. Við erum í góðri stöðu en önnur lið hafa líka fjárfest og náð framförum."

Benítez gerði líka lítið úr deilum sínum við eigendur félagsins: "Það var gert of mikið úr þessu. Bandaríkjamennirnir vilja það besta fyrir félagið og ég líka. Þeir vildu bara setjast niður og ræða málin því við eigum ólíkt móðurmál og fjarlægðin á milli okkar er mikil. Ég er rólegur og fullviss um að allt gangi að óskum hjá Liverpool. 40.000 manns sýndu stuðning sinn við mig á Netinu og voru undirritaðir allt frá Ástralíu til Asíu. Fjölmargir aðdáendur Liverpool styðja framkvæmdastjóra sem hefur unnið stóra titla fyrir félagið."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan