Torres vantar góðan samherja
Gömul hetja úr röðum Liverpoolmanna óska sér einskis frekar en að Rafa stilli upp Ryan Babel og Fernando Torres allajafnan saman í fremstu víglínu. Babel átti sterka innkomu gegn United á sunnudaginn og afmælisbarn dagsins á allt hrós skilið. Babel er 21 árs í dag.
Gefum Mark Lawrenson orðið:
"Benítez á að kaupa aukamiðvörð í félagsskiptaglugganum í janúar en ef Benítez fær aukareiðufé á hann ekki að sóa því. Að kaupa leikmenn í örvæntingu sinni á miðju tímabili er fyrir félög sem hafa nýja framkvæmdastjóra og verða að kaupa 6-7 nýja leikmenn til að nota í fallbaráttunni. Bestu félögin gera ekki slíkt. Ég man þó eftir einum vel heppnuðum kaupum í janúarglugganum hjá toppliðunum þegar Henrik Larsson fór til Manchester United.
Leikurinn gegn United á sunnudaginn sýndi fram á að eitthvað verður að gera vegna úrræðaleysis Liverpool gegn meisturunum. Ekki misskilja mig. Mér fannst þeir standa sig ágætlega. Það var lítill sem enginn munur á liðunum og United virtist ekki líklegt til að skora. Verra var að Liverpool var ekki heldur líklegt til afreka og ég hef áhyggjur af því að liðið á enn eftir að fara til Old Trafford, Stamford Bridge og Emirates. Liverpool á ávallt í erfiðleikum í slíkum leikjum því liðið hefur ekki nógu mikla burði til að brjóta toppliðin niður.
Lausnin á vandamálinu er ekki nýir leikmenn. Lausnin er Ryan Babel. Hann getur náð því besta úr Fernando Torres. Ég sé hann ekki sem kantmann heldur sem framherja að baki Torres. Hann er snöggur, nautsterkur og getur þrumað að marki án þess að halla sér aftur. Hann er einnig ungur sem þýðir að hann þarf smá hvatningu og fullvissu um að hann fái verðugt tækifæri í liðinu í uppáhaldsstöðunni sinni.
Samvinna hans og Torres gæti þá blómstrað en Benítez hefur vantað verðugan samherja við hlið Torres. Dirk Kuyt er traustur atvinnumaður en þannig leikmenn vinna ekki leikina gegn sterkustu liðunum reglulega. Kuyt leggur hart að sér en er ekki eiginlegur markaskorari og öll lið sem ætla sér titilinn verða að hafa markaskorara í sínum röðum. Sjáið hvað Babel hefur afrekað eftir að hafa komið inná sem varamaður! Hann hefur klárað færin sín af stakri snilld og það mun ekki langt líða þar til aðdáendurnir vilja sjá hvað hann getur á 90 mínútum fremur en sem varamaður.
Ég sé ekki að Kuyt, Crouch eða Voronin séu nógu sterkir við hlið Torres en Hollendingurinn ungi virðist smellpassa. Hann gæti reynst bestu kaup Benítez í væntanlegum félagsskiptaglugga."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

