| Sf. Gutt

George Gillett vill hafa Rafael Benítez áfram

George Gillett, annar eiganda Liverpool, vill hafa Rafael Benítez áfram sem framkvæmdastjóra hjá félaginu. Hann segir að deilur þeirra Tom Hicks og Rafa hefðu aldrei átt að eiga sér stað. Hann hyggst leysa ágreining þeirra þremenninga eins og hvert annað deilumál sem kemur upp í öllum góðum hjónaböndum!

"Þetta átti aldrei að fara svona. Þetta gerðist þó og nú verðum við að einbeita okkur að því að leita eftir sameiginlegum grundvelli til að byggja áframhaldandi samvinnu okkar á. Rafa er sá sem við viljum að stjórni liðinu í komandi framtíð og við berum traust til hans. Ég er búinn að vera giftur í meira en 40 ár og hef því sjálfur góða reynslu af að leysa ágreiningsmál. Við höfum einbeitt okkur að því að ná yfirsýn á stöðu mála og mér finnst að okkur hafi tekist það."

Eftir þessum og öðrum ummælum að dæma virðist svo sem fundur Rafael Benítez og stjórnarmanna Liverpool, á sunnudaginn, hafi gengið vel fyrir sig. Sverðin hafa verið slíðruð. Það er hafi þau einhvern tíma verið tekin fram. Nú virðast allir aðilar sáttir og tilbúnir að leggjast saman á árarnar.  

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan