Enn af nýjum leikvangi!
Nú er árstími þjóðsagna og ævintýra. Ein er þó sú saga sem er að verða eins ævintýraleg og dularfull og bestu þjóðsögur. Hún fer líklega bráðum að lenda í hópi endalausu sagnanna. Nýr þráður hennar spannst nú rétt fyrir jólin. Rick Parry ræddi þá enn einu sinni um hinn nýja Anfield! Það nýjasta í því máli er að leikvangurinn sem kynntur var til sögunnar í sumar mun sennilega ekki rísa í þeirri mynd sem þá var kynnt til sögunnar. Ástæðan er sú að kostnaður við þá útfærslu mun hafa reiknast öllu meiri en ætlað var. Rick hafði þetta að segja um nýja leikvanginn.
"Við erum nú að skoða tvær útgáfur en leikvangurinn mun samt taka 70.000 áhorfendur í sæti. Nýi leikvangurinn mun verða miklu betri en upphaflegu áætlanirnar sögðu til um en hann verður aðeins öðruvísi en nýju teikningarnar sýndu. Hann verður miklu betri en sá sem við höfum á teikniborðinu fyrir 12 mánuðum en kannski ekki eins framúrstefnulegur og sá sem við kynntum í sumar. Stóra Kop stúkan er enn höfuðatriðið í hönnuninni. Við reiknum ekki með neinum töfum og leikvangurinn ætti að vera tilbúinn árið 2011."
Sagan af hinum nýja leikvangi er heldur betur búin að dragast á langinn. Teikningarnar sem voru kynntar í sumar og þóttu einstakar í sinni röð eru því að einhverju orðnar úreltar. Sá glæsilegi leikvangur mun, miðað við þeesi orð Rick Parry, aldrei rísa í þeirri mynd sem kynnt var. Það má því búast við nýjum teikningum en það er ekki gott að segja hvenær þær liggja fyrir!

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

