Momo Sissoko er ekki sáttur
Momo Sissoko var ekki í hópnum sem fór til Frakklands og sat því eftir á Englandi með sárt ennið. Hann er alls ekki sáttur við Rafa Benítez vegna þessa.
Sissoko stefnir á að ræða um stöðu sína innan liðsins við Benítez eftir áramótin. Hann sagði við franska útvarpsstöð: ,,Ég er virkilega vondur. Leikurinn var í Frakklandi, öll mín fjölskylda er þar og þau vildu sjá mig á vellinum."
,,Þetta eru erfiðir tímar fyrir mig. Ég hef verið að hugsa um að fara frá félaginu í dágóðan tíma. Það er ákvörðun stjórans að skilja mig eftir. Ég virði þá ákvörðun en ég mun spjalla við hann í janúar."
,,Ég get sætt mig við samkeppni um stöður. En ég hef ekki áhuga á því að spila aðeins í fimmta hverjum leik."
Svo mörg voru þau orð og pirringur Sissoko er skiljanlegur. Því miður fyrir hann eru aðrir leikmenn ofar í goggunarröðinni og hefur Lucas til að mynda staðið sig betur en Sissoko á tímabilinu. Ef Sissoko vill fá að spila meira mætti hann bæta boltatækni sína því enginn efast um varnarhæfileika hans.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

