| Ólafur Haukur Tómasson

Liverpool ekki á eftir Capello

Fréttir herma að Liverpool hafi tvisvar haft samband við ítalska knattspyrnustjórann Fabio Capello, sem að hefur meðal annars stýrt liðum eins og Real Madrid, Roma, AC Milan og Juventus. Forráðamenn Liverpool eiga að hafa haft samband við Capello bæði fyrir og eftir leik liðsins gegn Porto.

Talsmaður Liverpool Football Club hefur hins vegar þvertekið fyrir þessar sögusagnir: "Þessar sögur er algjör þvæla."

Capello hefur verið án félags síðan hann var látinn taka poka sinn hjá Real Madrid, þrátt fyrir að hafa gert liðið að Spánarmeisturum.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan