| HI

Mölby ánægður með Lucas

Jan Mölby, gamla hetjan á miðjunni hjá Liverpool, er afar ánægður með frammistöðu Brasilíumannsins Lucas á miðjunni í síðustu leikjum, og spáir honum bjartri framtíð. Hinn tvítugi miðjumaður hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína síðustu vikunnar, ekki hvað síst þegar hann lék með Steven Gerrard á miðjunni gegn Bolton um helgina. Það hlýtur að vekja athygli að Lucas sé að stimpla sig svo snemma í liðið í ljósi mikillar samkeppni um stöðu á miðjunni hjá Liverpool.

"Ég er mjög hrifinn af honum," segir Mölby. "Þegar við keyptum hann vissum við að hann hefði hæfileika en við héldum að hann yrði framtíðarleikmaður. Við erum mjög vel settir á miðjunni með Gerrard, Alonso, Mascherano og Sissoko en hann hefur greinilega sýnt eitthvað á æfingum og tryggt sér tækifæri í aðalliðinu.

Það er erfitt að segja hvernig leikmaður hann verður en hann virðist hafa eitthvað af öllu. Hann er mjög yfirvegaður á boltann, hann gefur góðar sendingar og hann getur einnig sótt fram og skapað færi. Það góða í mínum huga er að hann er einn af mörgum ungum leikmönnum sem eru þegar farnir að gera góða hluti. Rafa er með leikmenn eins og Reina, Arbeloa, Babel, Agger og Torres - sem eru allir ungir en eru þegar orðnir nógu góðir. Lucas fer í þann flokk líka."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan