| Ólafur Haukur Tómasson

Rafa skorar á ungu stjörnurnar

Rafael Benítez er ánægður með frammistöðu Ryan Babel, Lucas Leiva og Sebastian Leto sem að hefur verið góð það sem af er af tímabilinu, en hann er að sama skapi alveg fullviss um að þeir eigi heilmikið inni.

"Liðið okkar er mjög gott og vonandi mun styrkur liðsins sjást betur þegar líður meir á tímabilið. Nokkrir ungir leikmenn eins og þeir Lucas Leiva, Sebastian Leto og Ryan Babel munu vaxa og bæta sig á tímabilinu og ég er fullviss um að þeir muni spila betur. Ég er ekki ósáttur með þá en ég tel þá eiga mikið inni." sagði Rafa Benítez.

Af þeim Ryan Babel, Lucas Leiva og Sebastian Leto þá er aðeins Ryan Babel sá sem að spilar með landsliði sínu í landsleikjahléinu en hann spilar með hollenska landsliðinu sem að mætir Lúxembúrg og Hvíta-Rússlandi.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan