| Arnar Magnús Róbertsson
Samkvæmt Finnska blaðinu IS Urheilu hafa Liverpool tryggt sér efnilegan Finnskan leikmann að nafni Lauri Della Valle og er hann aðeins 16 ára gamall.
Það mun hafa kostað Liverpool um 100 þús pund að kaupa Dalla Valle frá klúbbnum Jippo. Dalla Valle á ítalskan föður og það hafa fleiri félög haft áhuga á drengnum.
Fjölmiðlar í Finnland halda því fram að Dalle Valla muni fá allt að 1 milljón punda fyrir að skrifa undir hjá Liverpool til viðbótar við launin.
Liverpool hafa fylgst með miðjumanninum í rúmlega ár núna og hefur aðalnjósnari akademíunnar Malcom Elias farið nokkrar ferðir til Finnlands að sannfæra strákinn unga til að ganga til liðs við Liverpool og hefur það nú tekist.
"Þetta er frábær tilfinning, það er virkilega gott fólk hérna og aðstæðurnar eru frábærar" sagði Lauri
"Ég vona að ég geti komist fljótt á Melwood þar sem aðal og varaliðið æfa"
"Sami hafði bara jákvæða hluti til að segja mér um Liverpool en hann minnti mig líka á að það þarf heilmikla vinnu til að komast á toppinn og halda sér þar" sagði Dalla Valle eftir að hafa hitt Sami Hyypia
"Við hefðum getað fengið meiri peninga annars staðar" segir Loreno Dalle Valle (faðir Lauri). "Lauri áleit þetta vera bestu lausnina"
Chelsea hafa haft mikinn áhuga á honum og buðu honum háa fjárhæð fyrir að koma en hann neitaði, einnig fór hann til Inter þar sem hann skrifaði undir samning, en eftir nokkra mánuði á Ítalíu snéri aftur til Finnlands útaf heimþrá. Einnig fór hann til Chievo á reynslu en Liverpool virðist hafa haft betur í baráttu við Lazio sem höfðu áhuga á stráknum unga en Livepool virðist hafa heillað hann og mun hann ganga til liðs við félagið í Janúar.
Dalle Valle lék áður sem framherji fyrir sinn finnska klúbb þar sem hermt er að hann hafi skorað 80 mörk í 40 leikjum ásamt því að hafa verið með í því að leggja upp rúm 77 mörk.
Hjá Inter mun hann hinsvegar hafa spilað mest sem miðjumaður og var einn af þeirra bestu leikmönnum í sínum aldursflokki hjá Inter Milan og Ítalska knattspyrnusambandi mun hafa haft áhuga á því að hann léki fyrir landslið Ítalíu frekar en Finnlands
"Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér. Þessi samningur sendir þau skilaboð til annarra ungra leikmanna í Finnlandi að þú getir komist langt með því að leggja þitt að mörkum við æfingar og leik" sagði Malcom Elias aðalnjósnari unglingaakademíu Liverpool.
"Það að koma til Liverpool sem hefur leikmenn eins og Gerrard, Carragher og Hyypia, mun verða stór áskorun fyrir hann" bætti Malcom Elias við
"Við munum ekki leggja of miklu pressu á hann og viljum að hann láta taka þetta skref fyrir skref en þú kemst ekki alveg hjá því í klúbbi eins og Liverpool" segir Elias sem segir að Dalla Valle munu byrja sinn feril hjá Liverpool í U18 ára liðinu
Verður sannarlega skemmtilegt að fylgjast með honum í framtíðinni og alltaf er jafn gaman þegar ungir og efnilegir leikmenn ganga til liðs við Liverpool.
Smá upplýsingar um Della Valle
Nafn: Lauri Dalla Valle
Fæddur: 14.09.1991 í Joensuu
Hæð: 180 cm
Þyngd: 73 kg
TIL BAKA
Liverpool kaupir 16 ára Finna
Samkvæmt Finnska blaðinu IS Urheilu hafa Liverpool tryggt sér efnilegan Finnskan leikmann að nafni Lauri Della Valle og er hann aðeins 16 ára gamall. Það mun hafa kostað Liverpool um 100 þús pund að kaupa Dalla Valle frá klúbbnum Jippo. Dalla Valle á ítalskan föður og það hafa fleiri félög haft áhuga á drengnum.
Fjölmiðlar í Finnland halda því fram að Dalle Valla muni fá allt að 1 milljón punda fyrir að skrifa undir hjá Liverpool til viðbótar við launin.
Liverpool hafa fylgst með miðjumanninum í rúmlega ár núna og hefur aðalnjósnari akademíunnar Malcom Elias farið nokkrar ferðir til Finnlands að sannfæra strákinn unga til að ganga til liðs við Liverpool og hefur það nú tekist.
"Þetta er frábær tilfinning, það er virkilega gott fólk hérna og aðstæðurnar eru frábærar" sagði Lauri
"Ég vona að ég geti komist fljótt á Melwood þar sem aðal og varaliðið æfa"
"Sami hafði bara jákvæða hluti til að segja mér um Liverpool en hann minnti mig líka á að það þarf heilmikla vinnu til að komast á toppinn og halda sér þar" sagði Dalla Valle eftir að hafa hitt Sami Hyypia
"Við hefðum getað fengið meiri peninga annars staðar" segir Loreno Dalle Valle (faðir Lauri). "Lauri áleit þetta vera bestu lausnina"
Chelsea hafa haft mikinn áhuga á honum og buðu honum háa fjárhæð fyrir að koma en hann neitaði, einnig fór hann til Inter þar sem hann skrifaði undir samning, en eftir nokkra mánuði á Ítalíu snéri aftur til Finnlands útaf heimþrá. Einnig fór hann til Chievo á reynslu en Liverpool virðist hafa haft betur í baráttu við Lazio sem höfðu áhuga á stráknum unga en Livepool virðist hafa heillað hann og mun hann ganga til liðs við félagið í Janúar.
Dalle Valle lék áður sem framherji fyrir sinn finnska klúbb þar sem hermt er að hann hafi skorað 80 mörk í 40 leikjum ásamt því að hafa verið með í því að leggja upp rúm 77 mörk.
Hjá Inter mun hann hinsvegar hafa spilað mest sem miðjumaður og var einn af þeirra bestu leikmönnum í sínum aldursflokki hjá Inter Milan og Ítalska knattspyrnusambandi mun hafa haft áhuga á því að hann léki fyrir landslið Ítalíu frekar en Finnlands
"Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér. Þessi samningur sendir þau skilaboð til annarra ungra leikmanna í Finnlandi að þú getir komist langt með því að leggja þitt að mörkum við æfingar og leik" sagði Malcom Elias aðalnjósnari unglingaakademíu Liverpool.
"Það að koma til Liverpool sem hefur leikmenn eins og Gerrard, Carragher og Hyypia, mun verða stór áskorun fyrir hann" bætti Malcom Elias við
"Við munum ekki leggja of miklu pressu á hann og viljum að hann láta taka þetta skref fyrir skref en þú kemst ekki alveg hjá því í klúbbi eins og Liverpool" segir Elias sem segir að Dalla Valle munu byrja sinn feril hjá Liverpool í U18 ára liðinu
Verður sannarlega skemmtilegt að fylgjast með honum í framtíðinni og alltaf er jafn gaman þegar ungir og efnilegir leikmenn ganga til liðs við Liverpool.
Smá upplýsingar um Della Valle
Nafn: Lauri Dalla Valle
Fæddur: 14.09.1991 í Joensuu
Hæð: 180 cm
Þyngd: 73 kg
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

