| AB

Babel þarf góðan aðlögunartíma

Ryan Babel hefur ekki beint staðið undir væntingum Liverpoolaðdáenda eftir að hann kom til Liverpool í sumar frá Ajax. Hann virðist beinlínis ragur að taka leikmenn á og þegar hann gerir það bíður hann oftast nær lægri hlut gegn varnarmanninum. Það er þó öllum ljóst að þetta hlýtur að vera efniviður í öflugan leikmann en Rafa telur að tíminn muni leiða það í ljós:

"Við megum ekki gleyma því að Ryan er bara tvítugur og er nýkominn frá öðru landi og öðruvísi leikstíl, segir Rafa. "Í Hollandi var hann kantmaður í 4-3-3 leikkferfi og framherji hjá hollenska landsliðinu. Það gildir það sama um Lucas Leiva og Sebastian Leto. Þeir eru ungir og þurfa sinn aðlögunartíma.

Það sem hrífur mig mest við Ryan er hversu fær hann er í að leika á andstæðinginn. Honum finnst gaman að rekja boltann og skjóta á markið. Hann býr yfir hraða og krafti og veit hvernig á að nýta styrkleika sína sér til framdráttar. Hann verður þessu liði mikilvægur í framtíðinni."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan