Lucas verður stjarna
Rafael Benítez og Steven Gerrard telja að framtíð Lucas Leiva hjá Liverpool sé björt. Ef ekki hefði verið fyrir frábæra tilburði Phil Neville væri Lucas nú þegar búinn að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna Liverpool.
Þess í stað er þátttöku hans í nágrannaslagnum gegn Everton helst minnst fyrir það að hafa komið inná fyrir Steven Gerrard, í skiptingu þar sem enginn skildi hvað Rafa Benítez var að hugsa.
Hinsvegar telja bæði Rafa og Gerrard að Lucas eigi eftir að verða lykilmaður í liði Liverpool í náinni framtíð.
,,Lucas er ennþá ungur leikmaður," sagði Benítez. ,,En hann er leikmaður sem nú þegar hefur góða reynslu eftir að hafa spilað í Brasilíu. Hann hefur mikið sjálfstraust og hann hefur mikla hæfileika. Núna er mikilvægasti hluturinn fyrir hann að setjast að hérna og koma sér fyrir."
Þó svo að margir vilji halda öðru fram þá ber Steven Gerrard engan kala til Lucas eftir að sá síðarnefndi kom inná í leiknum gegn Everton. Þvert á móti segir Gerrard að Lucas hafi átt stóran þátt í sigrinum. ,,Hann hefði getað skorað sigurmarkið í nágrannaslagnum í sínum fyrsta deildarleik og það eru ekki margir leikmenn sem geta sagst hafa náð því. Það er alltaf erfitt fyrir nýja leikmenn að koma inná í nágrannaslagnum, sérstaklega þegar þeir eru vanir því að spila aðra tegund af fótbolta í öðru landi. En Lucas kom inná og stóð sig vel."
,,Ég hef séð nóg af honum á æfingum til þess að gera mér grein fyrir því að hann á framtíðina fyrir sér. Hann er ungur strákur en um leið og hann öðlast meiri reynslu, heldur áfram að gera réttu hlutina á æfingum og hlusta á rétta fólkið, þá er ég viss um að hann verður stórkostlegur leikmaður"
Í raun má segja að möguleikar Lucasar á að verða stórstjarna hafi komið í ljós í heimalandi hans, Brasilíu, þegar hann var aðeins táningur.
Þegar hann var átján ára spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir Gremio gegn Nautico og vakti aðdáun margra, þar sem hann gaf sér iðulega góðan tíma á boltanum, í ofsafengnum leik.
Þessir sömu eiginleikar komu í ljós á Anfield á miðvikudagskvöldið þegar Lucas sýndi mikinn þroska gegn Cardiff City með leik sínum en hann var þó greinilega orðinn þreyttur undir lok leiksins.
Benítez veit nákvæmlega hvað hann fékk þegar hann barðist við nokkur stórlið um kaupin á Lucas en talið er að hann hafi kostað í kringum 6 milljónir punda.
,,Hann er fyrirliði U-21 árs liðs Brasilíumanna og hefur nú þegar spilað fyrir aðallið þeirra, þannig að við vissum allt um gæði hans," sagði Benítez.
,,Það er ekki eins og að hann sé að spila fyrir litla þjóð. Þetta er Brasilía og það er mjög erfitt fyrir leikmann að spila fyrir svona stórt lið á þessum aldri. Við erum því mjög ánægðir með að hafa keypt hann og ég er viss um að við munum sjá meira af honum eftir því sem að líður á tímabilið."
Eftir að hafa sannað sig sem leikmann í aðalliðshópi á Anfield má segja að nú verði Lucas að stefna að því að fá fleiri tækifæri með aðalliðinu. En þegar maður er ungur leikmaður í ókunnu landi og keppir um stöður við leikmenn eins og Gerrard, Xabi Alonso, Javier Mascherano og Momo Sissoko, er það auðveldara sagt en gert.
Benítez hefur hinsvegar mikla trú á hæfileikum Lucasar og telur að hann geti ógnað þessum fjórum leikmönnum. Sú staðreynd að þessi tvítugi leikmaður hafi nú þegar sýnt að hann geti spilað með þessum leikmönnum gerir Rafa Benítez auðveldara með að trúa á hann.
Á síðasta ári varð Lucas yngsti leikmaðurinn sem hefur unnið Bola de Oura en það eru verðlaun sem eru veitt besta leikmanninum í brasilísku úrvalsdeildinni.
Þeir leikmenn sem hafa unnið þessi verðlaun eru engin smá nöfn, Kaka, Carlos Tevez, Romario, Careca, Falcao og Zico. Það má því með sanni segja að maður verður að vera nokkuð sérstakur til að vinna þessi virtu verðlaun.
Nú vill Benítez að Lucas sýni og sanni hversu sérstakur hann er, og bætti við: ,,Lucas hefur gæðin og hugarfarið til að gera vel. Þetta er öðruvísi fyrir hann á Englandi, jafnvel smáatriði eins og grasið sem við spilum á er öðru vísi. En hann er að aðlagast vel og hefur sýnt í undanförnum leikjum að hann er leikmaður með hæfileika og hann getur gert vel í þessu landi."

,,Hann hefði getað skorað gegn Everton og það er synd að það gerðist ekki vegna þess að sigurmark í nágrannaslag hefði gert honum gott. En hann spilaði engu að síður mikilvægt hlutverk í sigrinum og það er gott. Hann er leikmaður sem líður vel með boltann, hann getur sent mjög góðar sendingar, hann er hreyfanlegur, er alltaf nálægt þegar hlutirnir gerast og hann getur farið á vítateiganna á milli."
,,Hann getur spilað sem varnarsinnaður miðjumaður en hann hefur líka gaman að því að fara fram vegna þess að hann skorar mörk, það má því segja að hann sé alhliða miðjumaður."
Fín markvarsla Phil Neville gæti hafa komið í veg fyrir að Lucas sé orðinn hetja nú þegar, en ef marka má umsögn Gerrard og Benítez þá er þess ekki langt að bíða að stuðningsmenn Liverpool líti á Lucas sem hetju.
Staðreyndir um Lucas Leiva
* Hann er fæddur þann 9. janúar 1987 í Dourados, Mato Grosso du Sul.
* Hann er bróðursonur fyrrum brasilíska landsliðsmannsins Leivinha.
* Lucas spilaði sinn fyrsta leik fyrir Gremio gegn Nautico þann 22 október 2005, aðeins fimm mánuðum eftir að Liverpool unnu sinn fimmta Evrópumeistarabikar í Istanbúl.
* Í unglingalandsliðskeppni Suður-Ameríku árið 2007, var Lucas fyrirliði Brasilíu sem urðu meistarar og skoraði hann fjögur mörk í keppninni.
* Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Brasilíu í ágúst þegar hann kom inná sem varamaður í vináttuleik gegn Alsír.
* Lucas spilaði sinn fyrsta leik fyrir Liverpool gegn Toulouse, er hann kom inná sem varamaður í síðari hálfleik.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

