Liverpool orðað við danskan ungling
Liverpool fylgist nú með ungum dönskum varnarmanni, Simon Kjær, sem leikur með FC Mydtjylland í heimalandi sínu. Mörg stórlið í Evrópu hafa einnig fylgst með drengnum.
Undanfarið hefur Kjær sterklega verið orðaður við Middlesborough, enda er umboðsmaður hans, Mikkel Beck, fyrrum leikmaður félagsins. Samkvæmt fréttum Sky Sports sendi Benítez njósnara til að fylgjast með Kjær og var afar ánægður með það sem um hann var sagt.
Kjær, sem er fastamaður í 19 ára landsliði Dana, hefur vakið athygli margra liða að sögn umboðsmannsins. "Maður gerir sér grein fyrir því hversu sérstakur strákurinn er þegar Liverpool fylgist með honum og segir manni að hann sé nógu góður til að spila í aðalliði þeirra. Messi, Rooney, Dos Santos - hann er sérstakur á sama hátt.
Lille og Monaco voru fyrst til að sýna honum áhuga, síðan kom Real með mun betra tilboð en því var hafnað. Hann er mun meira virði."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

