| HI

Torres hafnaði keppinautunum

Fernando Torres segist hafa hafnað tilboðum frá Manchester United, Chelsea og Arsenal áður en hann gekk til liðs við Liverpool. Þessi tilboð fékk hann meðan hann lék sem best með Atletico Madrid.

"Það komu tilboð frá Arsenal, Chelsea og Manchester United en þá vildi ég frekar vera áfram hjá Atletico. Ég er mun betri leikmaður núna þegar ég er kominn til Liverpool. Með tímanum lærir maður að hreyfa sig betur."

Ef Torres spilar gegn Porto annað kvöld markar það tímamót á ferli hans, en þetta verður þá fyrsti alvöru Evrópuleikur hans. Hann hafði áður spilað í forkeppni meistaradeildarinnar með Liverpool. Þetta verður að teljast sérstakt þar sem Torres hefur spilað nærri 50 landsleiki fyrir Spán.

"Allir vilja spila í Evrópukeppni og vera meðal þeirra bestu. En ég kom ekki hingað vegna peninga, ég kom vegna áskorunarinnar og tækifærisins til að vinna titla og ég held að ég geti gert það hjá Liverpool. Tækifærið til að spila í meistaradeildinni og með frábærum leikmönnum er það sem skiptir máli. Ég vil leggja mitt af mörkum með mörkunum mínum."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan