Varalið Liverpool gerði jafntefli
Varaliðið lék sinn fyrsta leik á leiktíðinni í kvöld. Liðið gerði 1:1 jafntefli á útivelli gegn Middlesborough. Liverpool hefði þó átt skilið að vinna því mark Boro var eins ólöglegt og mest mátti vera. Fjölmargir leikmenn Liverpool léku í fyrsta sinn með varaliðinu. Charles Itandje stóð í markinu og Spánverjinn Mikel San Jose lék í vörninni. Þeir Lucas Leiva og Sebastian Leito, sem léku með aðalliðinu gegn Toulouse í síðustu viku, voru báðir í byrjunarliðinu. Ryan Crowther, sem kom frá Stockport County í sumar, spilaði fyrri hálfleikinn. Frakkinn Damien Plessis, sem var keyptur rétt fyrir lok félagsskiptagluggans, kom inná sem varamaður.
Middlesbrough komst yfir á mjög undeildan hátt á 10. mínútu. Framherjinn Tom Craddock sló fyrirgjöf Gaizka Mendieta með hendinni í markið líkt og Diego Maradona forðum gegn Englendingum. Itandje mótmælti kröftuglega en það stoðaði lítið. Liverpool jafnaði loks leikinn með marki Ray Putterill (á mynd) úr vítaspyrnu á 76. mínútu eftir að varnarmaðurinn Jonathan Grounds handlék knöttinn innan vítateigs. Liverpool var betri aðillinn í leiknum en nýtti ekki marktækifæri sín sem skyldi.
Varalið Middlesborough: Jones, McMahon, Johnson, Hines, Grounds, Cattermole (Thompson), Mendieta, Goulon (Smallwood), Craddock, Hutchinson (Cronesberry) og Bennett.
Varalið Liverpool: Itandje, Darby, Insúa, San Jose, Hobbs, Spearing, Crowther (Flynn 45. mín.), Lucas (Plessis 77. mín.), Lindfield, Brouwer (Putterill 59. mín.) og Leto. Ónotaðir varamenn: Martin og Threlfall.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Sebastian Leto. Hann átti framúrskrandi leik. Reyndi sífellt að leika á varnarmenn og skapa marktækifæri.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

