Landsleikjafréttir
Fjöldi landsleikja fór fram í kvöld. Alls voru fimmtán leikmenn Liverpool valdir í landslið sín fyrir þessa leiki. Einn lék sinn fyrsta landsleik og annar skoraði. Fjórir mættust innbyrðis.
Norðmenn unnu frækinn sigur á Argentínumönnum í Olsó. John Carew, leikmaður Aston Villa, skoraði bæði mörkin í 2:1 sigri. Maxi Rodriguez skoraði fyrir Argentínumenn. John Arne Riise og Javier Mascherano hófu báðir leikinn. John skoraði fyrsta markið úr víti eftir að Javier hafði brotið á John Arne sem átti líka þátt í seinna marki norskra! Björn Helge Riise var í liðinu og lék með stóra bróður!
Steven Finnan var í byrjunarliði Íra sem vann stórsigur á Dönum í Árósum. Steve fór af velli í síðari hálfleik. Írar unnu 4:0. Robbie Keane, leikmaður Tottenham og Shane Long, leikmaður Reading, skoruðu tvö mörk hvor. Shane kom inn á sem varamaður. Darren Potter, uppeldissonur Liverpool, var óvænt í byrjunarliði Íra. Hann stóð vel fyrir sínu. Daniel Agger lék allan leikinn fyrir Dani. Fyrir leikinn var einnar mínútu þögn til að minnast Tom föður Steve Staunton, landsliðsþjálfara Íra, sem lést nú í vikunni. Robbie Keane, fyrirliði Íra, tileinkaði Steve Staunton sigurinn vegna fráfalls föður hans.
Hvítrússar unnu 2:1 sigur á Ísrölum. Yossi Benayoun lék með ísrölum.
Hollendingar töpuðu 2:1 fyrir Sviss. Dirk Kuyt skoraði eina mark Hollands. Hann er nú vonandi kominn á skrið. Ryan Babel lék síðari hálfleikinn.
Spánverjar unnu 3:2 útisigur á Evrópumeisturum Grikkja. Jose Reina var í marki Spánverja. Fernando Torres var líka í byrjunarliðinu. Xabi Alonso og Luis Garcia komu inná sem varamenn.
Enskir töpuðu 2:1 fyrir Þjóðverjum á Wembley. Peter Crouch kom inná sem varamaður í síðari hálfleik. Frank Lampard kom enskum yfir en þeir Kevin Kuranyi og Christian Pander sneru blaðinu við fyrir hálfleik. David James, fyrrum markvörður Liverpool, lék sinn fyrsta landsleik um nokkurt skeið. Scott Carson sat á varamannabekknum.
Andriy Voronin lék með Úkraínu sem vann 2:1 sigur á Usbekistan.
Lucas Leiva lék sinn fyrsta landsleik með Suður Ameríkumeisturum Brasilíumanna. Hann kom inn sem varamaður þegar Brasilía vann 2:0 sigur á Alsír. Maicon og Ronaldinho skoruðu mörkin. Leikurinn fór fram í Montpellier í Frakklandi.
Þess má geta að John Toshack og Roy Eans lögðu á ráðin fyrir vel þeginn sigur Wales á Búlgaríu. Wales vann 1:0 á útivelli. Freddy Eastwood, leikmaður Wolves, skoraði sigurmarkið í sínum fyrsta landsleik. Craig Bellamy lék ekki með því kona hans var flutt á fæðingardeildina rétt áður en landslið Wales lagði upp í ferðina til Búlgaríu.
Fyrrnefndir leikir voru allir vináttuleikir. Finnar unnu 2:1 sigur á Kasakstan í undankeppni Evrópukeppni landsliða. Sami Hyypia var í byrjunarliði Finna. Alexei Eremenko kom Finnum yfir en Dmitriy Byakov jafnaði. Teemu Tainio skoraði sigurmarkið eftir undirbúning Daniel Sjölund sem eitt sinn var á mála hjá Liverpool. Daniel kom inná sem varamaður og átti líflegan leik.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

