Carra er hættur
Steve Mclaren reyndi að telja Jamie Carragher hughvarf í gær en Carra ætlar ekki að leika fleiri landsleiki fyrir enska landsliðið.
Jamie Carragher sagði fyrr í sumar að hann ætlaði að hætta að spila með enska landsliðinu. Hann segir ástæðuna vera þá að honum finnist hann ekki fá að spila nógu mikið með liðinu í sinni bestu stöðu sem miðvörður. Hann nefndi nokkur dæmi um aðra leikmenn, sem væru teknir fram yfir sig þegar hann hefði verið að leika vel í aðdraganda landsleikja. Eins sagðist hann vera ósáttur við að vera látinn spila sem bakvörður í landsliðinu. Jamie telur það fullreynt að hann verði fastamaður í enska landsliðinu og vill því beina öllum sínum kröftum að því að leika með Liverpool.
McClaren verður að sætta sig við ákvörðun Carra: "Ég hitti Jamie á mánudaginn og við áttum gott samtal en því miður hefur honum ekki snúist hugur og ætlar ekki að leika fyrir landsliðið. Við virðum þá ákvörðun. Jamie hefur þjónað landsliðinu frábærlega. Ég hef ekki lokað hurðinni á hann, hver veit hvað gæti gerst í framtíðinni."
Eins og sjá á myndinni hefur Carra snúið baki við enska landsliðinu.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

